Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál

Release Date:

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fjórða sumarþættinum er glæpir og sakamál.

Fjallað verður um morðið á Olof Palme, servéttu sem varð morðingja að falli í Bandaríkjunum, hvarf Önnu Elisabeth Hagen og almennan áhuga fólks á sakamálum.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál

Title
Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál
Copyright
Release Date

flashback