170 - Palestínuflóttamannahjálpin, skotárás í Serbíu og örlög Duffy

Veröffentlicht:

Það er talið að um tvær milljónir íbúa á Gasa reiði sig á UNRWA, Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna. Það eru hátt í níutíu prósent þeirra sem þar búa. En nú er óvissa með fjármögnum samtakanna, eftir að fram komu ásakanir um að nokkrir starfsmenn þeirra hefði tekið þátt í árás Hamas á Ísrael í haust. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið.

Í vikunni hófust réttarhöld yfir foreldrum drengs sem skaut tíu til bana í grunnskóla í Belgrad í Serbíu í fyrra. Hann var aðeins þrettán ára þegar hann framdi voðaverkið og foreldrar hans eru sakaðir um að útvega honum vopn og kenna honum að fara með þau. Birta Björnsdóttir segir frá.

Lítið hefur spurst til velsku söngkonunnar Duffy undanfarin ár. Duffy, sem þekktust er fyrir lag sitt Mercy, virtist hafa horfið nær alveg úr sviðsljósinu aðeins örfáum árum eftir að ferill hennar sprakk út fyrir um fimmtán árum. Það sem enginn vissi, og hún opinberaði mörgum árum síðar, var að hún varð fyrir grimmilegri frelsisviptingu og kynferðisofbeldi um nokkurra vikna skeið af. Þessi ömurlega lífsreynsla hafði þau áhrif á Duffy að hún lokaði sig af og það tók hana um áratug að ná bata. Oddur Þórðarson segir okkur frá örlögum Duffy.

170 - Palestínuflóttamannahjálpin, skotárás í Serbíu og örlög Duffy

Titel
170 - Palestínuflóttamannahjálpin, skotárás í Serbíu og örlög Duffy
Copyright
Veröffentlicht

flashback